If you refuse to accept anything but the best you very often get it.

31.12.2004 09:26:10 / dia

Gleðilegt nýtt ár

Staðartími: 16.10, tala látina í Tælandi: 1800
Kæru fjölskylda og vinir nær og fær ég vill óska ykkur öllum farsældar á komandi ári og ég vonast til að ég geti eytt meiri tíma með ykkur á nýju ári.

Hörmungarnar halda áfram hér og tala látina hækkar stöðugt. En ég hef það mjög fínt. Ég er að sjálfsögðu langt frá þessum hörmungum. Þetta er það sama og að ég væri í Danmörku og Phuket væri París. Svo eins og þið sjáið þá er þetta langt frá. Ég tók á móti 23 krökkum í dag. Útskriftarhópi frá Fljölbrautarskóla Suðurnesja. Það var þvílíkt búið að hræða þau. Foreleldrarnir ættluðu fyrst ekki að vilja senda þau og svo lokins þegar þau fengu að fara þá var þeim bannað allt mögulegt. Þau máttu ekki borða kjúkling, fisk, hrátt grænmeti og ávexti, ekki drekka vatn eða klaka og ekki drekka bjór á krana??? og annað í þessum dúr. Ég fór til BKK og tók á móti þeim, og þessa þrjá tíma sem það tekur að keyra til Hua Hin þá stoppuðu ekki spurningarnar og allt mögulegt sem ég að sjálfsögðu gat gefið þeim svar á. Svo ég held að ég hafi nú náð að róa þau niður.

Fararstjórarnir okkar 3 eru enn á Phuket og hafa lítið sem ekkert sofið síðan þau voru send þangað á mánudagsmorgni kl.3. Ef þau hafa eitthvað sofið hefur það verið á dýnu á gólfinu inn á skrifstofu. Við vitum enn ekki hvenær er von á þeim tilbaka til Hua Hin
Ég fékk e-mail frá Kuoni á Íslandi og þau sögðu mér að Mbl. vildi hafa samband við mig en ég má ekki gefa upp neinar upplýsingar. Svo ég vil heldur ekki skrifa of mikið hér á síðuna mína því að maður veit aldrei nema að þeir hjá Mbl. gætu komist yfir hana.

Í kvöld þá ætlum við 4 fararstjórarnir bara að fara út að borða til að halda smá upp á áramótin.

En ég vona að þið hafið haft það gott yfir jólin og óska ykkur alls hins besta á nýju ári.
Diana

» 3 hafa sagt sína skoðun

27.12.2004 09:05:58 / dia

Jarðskjálfti

Staðartími: 16.10 - tala látina er kominn upp í 15.000.
Kuoni er með gesti og fararsjóra á Phuket og í nótt þá fóru þrír fararstjórar frá Hua Hin og þrír BKK til að hjálpa til á Phuket, auk þess kom fullt af fólki frá höfuðstöðvum okkar í Stokholm í morgun. Það þýðir að það er búið að hætta við jólahlaðborðið í BKK í kvöld og í staðin þá er nóg að gera hjá okkur 4 sem eftir eru í Hua Hin og ég sé ekki fram á frí dag í þessari viku og ég efast um að gamlárskvöld verði eins flott og við höfðum ætlað okkur.

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.12.2004 11:00:45 / dia

Sumar 2005

Veður: 30C, sól.

Ég ætla að byrja á að segja að það er allt í lagi með mig. Ég fann ekki fyrir neinum jarðskjálfta hér....

Núna er ég búin að skila inn umsókninni fyrir næsta sumar. Ég sótti um Róm nr. 1, Alanya í Tyrklandi nr. 2 og Krít nr. 3. Núna verður spennandi að sjá hvað ég fæ. Það verður hringt í mig í lok jan, byrjun feb og þá fæ ég að vita hvert ég verð send.

Á morgunn hittast guidarnir í BKK þar sem okkur er boðið á jólahlaðborð á dönskum veitingarstað þar. Það verður gaman að hitta fólkið frá hinum stöðunum.....

Það er ekki enn komið á hreint hvað við gerum á gamlárskvöld, en ég er búin að sækja kjólinn sem ég var að láta sauma á mig og hann er svaka flottur.....

Ég sakna ykkar allra og langar rosalega mikið til að koma heim til ykkar


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.12.2004 07:15:29 / dia

Gleðileg Jól

Veður: 29C, sól, smá vindur

Elsku fjölskylda og vinir nær og fær. Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og alls hins besta á nýju ári. Ég vonast til að ég geti hitt ykkur öll á næsta ári.

Í kvöld þá fer ég til Bangkok og kem til baka til Hua Hin í fyrramálið. Kl. 8 annað kvöld þá hittast fararstjórarnir frá Kuoni og öðrum scandinavískum ferðaskrifstofum og við borðum saman jóla mat á dönskum matsölustað. Við syngjum jólalög og verðum með pakka leik.

Mig langar alveg rosalega mikið til að koma heim núna. Ég var alveg búin að sætta mig við að vera hérna yfir jólin, en svo talaði ég við pabba og Söndur í gær og þau voru að segja mér að þau væru búin að kaupa jólatréið og pabba var að búa til konfekt með Alex og eftir þetta símtal þá langar mig rosalega mikið til að koma heim......

Gleðileg jól allir saman.....

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.12.2004 11:43:18 / dia

Sumar 2005

Veður: sól, 30C, loksins aftur komið upp í 30C 8)

Jæja elsku fjölskylda og vinir, nú þarfnast ég ykkar hjálpar til að hjálpa mér að velja hvert ég á að sækja um að fara næsta sumar og vinna. Valið stendur á milli: Mallorca, Kanaríeyjarnar, Túnis, 23 grískar eyjur, Ítalía - Róm, Kýpur, Egyptaland, Tyrkland, Malta, Portugal, Bulgaria, Rúmenía, Montenegro, Króatía og Kenya. Þetta eru þessar svo kölluðu charter destinations sem hægt er að velja um.
Sjálfri finst mér Róm hljóma mjög spennandi en það er bara einn fararsjóri þar og einn yfirmaður svo það eru ekki miklir möguleikar auk þess sem það er ekkert rosalega gaman að vera svona fáir. Fredirk er að segja mér að sækja um Sunny Beach í Búlgaríu þar eru 23 fararsjórar og ca. 2000 gestir á viku. Hann sagði að þar er fullt af vinnu og allt er rosalega ódýrt og maður eyðir engum pening því að fararstjórar borða frítt allstaðar. Hann getur auðvitað sagt svona, hann er ekki shopping freak eins og ég:)
En endilega segið mér hvað ykkur finnst. Ég set upp skoðunarkönnun hér til hliðar með nokkrum valmöguleikum, svo er ykkur líka velkomið að segja skoðun ykkar hér....

» 6 hafa sagt sína skoðun

16.12.2004 10:30:53 / dia

I love Hua Hin

Veður: 27C, sól

Jæja ég er búin að ná mér niður ég er ekki brjáluð lengur yfir því að fá ekki að fara í hringferðir. Ég var í fríi í gær og þá fór ég að hugsa um það hvað ég hef það gott hér í Hua Hin. Ég byrja á því að sofa út, svo fór ég í nudd og fór svo á Starbucks og fékk mér kaffi og skrifaði jólakort og svo endaði ég á því að fara í klippingu, litun, strípur, hand- og fótsnyrtingu og kostaði það einungis 2500kr. Betra getur lífið ekki orðið:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.12.2004 03:17:07 / dia

Brjáluð

Veður: 25C, kalt, rok, sól

Ég er brjáluð, gjörsamlega brjáluð:evil:
Núna er ég búin að vinna hér í Hua Hin í 8 mánuði. Síðasta miðvikudag þá áttu Martin, Tonni, Ann-Sofi og Hanne Sofie að fara á svona rundrejsekúrs í BKK ásamt öllum öðrum rundrejse fararstjórum í Thailandi. Svo var ég búin að heyra það svona udundan mér að það ætti að senda einhverja nýja guida með á kúrsin, því að það er búið að selja svo mikið af rundjeser að það er ekki nóg af rundrejse fararsjórum. Svo ég var svona eiginlega að vonast til að ég fengi að fara. Því að mig langar mjög mikið til að fara í hringferðir. En hvað gerist. Díana er ekki send, heldur Mette sem er búin að vera í Hua Hin í 1 mánuð og Jenni sem er búin að vera hér í viku. Sem þýðir að núna eru allir í Hua Hin rundrejse fararstjórar nema ég, Fredrik sem er yfirmaður og Tuk sem er lömuð og getrur ekki gengið. Ég spurði Fredrik afhverju ég fékk ekki að fara og svarið sem ég fékk var útaf því að ég var ráðin til þess að sjá um íslenksa gesti og þess vegna er ekki hægt að senda mig í burtu í viku á rundjese ef að það kæmu íslenskir gestir á meðan. Hallo!!! það er ekker af íslenskum gestum, það er svo lítið af þeim, það koma svona tveir og tveir annað slagið. Og þó svo að það kæmu einhverjir þá gætu þeir alveg lifað án mín í eina viku og svo myndu þeir bara hitta mig þegar ég kæmi til baka. En neina svona er þetta bara. Ég myndi kannski skilja þetta aðeins betur ef Mette og Jenni væru búnar að vinna lengi sem fararstjórar, en nei, nei. Þær eru búnar að vera jafn lengi og ég í bransanum. Martin og Tuk finnst þetta líka ósangjarnt. Tuk sagði að hún héldi líka að átæðan gæti verið að ég væri of ung. Mette er 30 ára og Jenni er 27 ára. Maður þarf að bera ábyrgð á 20-30 gestum í heila viku. En málið er að ég er ekki eins og annað 21 árs gamalt fólk. Ég er með ábyrgð. Ég á tvö yngir systkini sem ég passaði frá því að ég var lítil. En yfirvöldin vita það auðvitað ekki. Því að það er ekki bara Fredrik sem ræður hver fær að keyra rundrejse. Hann hefur ekkert með rundrejse að gera. Það eru Jakob og Kenneth frá BKK sem ráða öllu um þetta. Og þeir vita bara ekki hvað ég get.
En ég get víst ekkert gert úr þessu. Ég verð bara að sætta mig við þetta:(

» 3 hafa sagt sína skoðun

08.12.2004 02:48:30 / dia

Kalt!!!!

Veður: 25°C, skítakuldi, skýað, rok.

Shit, hvað mér er kalt. Ég þurfti að fara í peysu í vinnuna í morgunn. Og núna sit ég inn á skrifstofu með slökt á loftkælingunni.
Ég var í fríi í gær og ég fór í bæinn og var í stuttbuxum og hlýrabol. Ég hélt að ég myndi deyja úr kulda á leiðinni. Ég finn mest fyrir kuldanum þegar ég er að keyra á vespunni minni þetta er ekki svo slæmt ef maður er bara að labba um. Svo það er víst óhætt að segja að það er kominn vetur í Thailandi. Þetta getur líka verið út af því að ég er orðin svo vön hitanum. Ég var að tala við einn tælenskan vin minn sem er búin að búa í Þýskalandi í 8 ár, hann er ný kominn aftur til Tælands til að fara í herinn. Hann er búin að vera hér í ca 1 mánuð og hann sagði að hann hefði verið af kafna úr hita fyrstu vikuna en núna væri honum kalt. Hann sagði mér þetta allt by the way á þýsku. Ég er orðin helv... góð í þýskunni aftur ég hélt að ég væri búin að gleyma þessu öllu. En þetta er allt þarna einhverstaðar grafið á bakvið, allt sem ég lærði á bóndabænum í Þýskalandi hjá Mohr fjölskyldunni.
Jæja segjum þetta gott í bili af tilgangslausu bulli....

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.12.2004 14:02:26 / dia

Myndir

Ég gleymdi að nefna það hér að neðan að það er komið fullt af myndum frá Singapore. Þið finnið link inn á síðuna hér til vinstri.


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.12.2004 13:51:39 / dia

Singapore

Jæja, þá núna hef ég loksins tíma til að klára að skrifa um Singapore. Það er búið að vera svo brjálað að gera hjá mér síðan að ég kom heim að ég er ekki einu sinni búin að taka upp úr töskunni minni ennþá. Ég kom til Hua Hin kl. 10 á miðvikudagskvöldið. Og ég þurfti að fara að vinna kl. 5 næsta morgun. Ég fór í skoðunarferð með 25 gesti til River Kwai. Svo á föstudaginn þá sýndi ég Jenni um bæinn. Jeanni er frá Svíþjóð og er nýr guide hér í Hua Hin. Og svo er laugardagur í dag.....

Singapore: Það var alveg æðislegt að vera þarna. Ég fór í skoðunarferð um bæinn með Hippo tours. Það er svona strætó sem maður getur keyrt með í klukkutíma og þá keyrir maður fram hjá því sem vert er að sjá. Ég fór í skoðunarferð til Santosa Island, það er engin sem býr á þessari litlu eyju, en það er strönd þarna sem margir fara á um helgar, svo sea world þarna og svo sá ég rosalega flott show, Musical fountain. Þá var búið að búa til show með tónlist og vatn og ljós. Ég fór í leikhús á sunnudagskvöldinu og sá Mamma Mia leikritið það var mjög gaman af því. Ég Dóra og Thor fórum í lunch upp á 70. hæð á einu hóteli. Ég fór með Eric á Raffel hótleið og fékk mér Singapore sling, maður getur nú ekki farið til singapore án þess:) Svo var auðvitað verslað. Á sunnudeginum komu foreldrar hans Eric frá Hong Kong, þau komu nú með soldið mölkúlu lykt með sér.... Dóra vonast til að lyktin verði farin fyrir jól:S Ég, Eric og foreldrar hans fórum í Night Safari. Það er dýragarður sem er opin á kvöldin. Þar var mikið af dýrum t.d. má nefna puma, fíla, buffalo, leopard, og síðast en ekki síst leðurblökur og fljúgandi íkornar sem mér leist ekkert á. Til að skoða leðurblökurnar og fljúgandi íkornana þá átti maður að fara inn í svona hús og ég ætlaði ekki að vilja fara þarna inn en Eric dróg mig. Ég labbaði fra hjá einu tré og Eric sagði mér að líta upp. Þá sá ég hvar tvær leðurblökur hengu og horfðu á mig. Ég var ekki lengi að hlaupa út. Næst var það fljúgandi íkornar og ég fékk heldur ekki að sleppa við að fara þangað inn. Ég sá einn sitja í tré, enn hann vara soldið hærra upp en leðurblökurnar hefðu verið. En hvað haldið þið að littla kínakerlingin hún mamma hans Eric gerir, hún var by the way ekkert hrædd við þessi kvikindi, hún var með vasaljós og beinir því að íkornanum, ég bað hana vinsamlegast um að hætta að beina athyglinni að okkur og svo hljóp ég í burtu.
Síðasta kvöldið fór fórum við að borða á sefood stað þar sem allur maturinn er lifandi í kerjum og svo áttu að benda á hvaða krabba/humar/rækjur/múslinga o.s.frv. þú vilt borða. Geðveikt góður matur.

En þetta var aðeins um fríið mitt. Það var rosalega gaman að geta farið og heimsótt þau og ég á vondi möguleika á að fara aftur og heimsækja þau. Að lokum þá vil ég skrifa soldið um sjála borgina.

Singapore er eyja sem er fyrir sunnan Malasiu. Það er hægt að keyra með lest frá Bangok til Singapore. The oriental express gerir einmitt það. Það búa ca 3 miljónir manna og eru Kínverjar í stærstum hluta og þar eftir koma Malasíubúar og Indverjar. Það er ekki selt tyggjó í búðum, ef þú vilt tyggjó þá þarftu að fá læknisvottorð. Það má ekki reykja á mörgum stöðum, sekt 5000kr., það má ekki henda rusli, sekt 5000kr, og margt fleira í þessum dúr. Lang flestir bílar eru yngri en 5 ára því að ef þú vilt eiga eldri bíl þá þarftu að borga extra gjald. Bílarnir kosta þrisvar sinnum meira en i USA. Allri bílar eru með lítið box með korti í ofan á mælaborðinu. Maður borgar pening inn a þetta kort svo er automatiskt dregnir peningar út af þessu korti þegar maður keyrir á vegum sem kostar að keyra á.  Lika þegar maður leggur bílnum á bílastæði sem þarf að borga fyrir að leggja á, þá eru líka dregnir peningar frá þessu korti. Nokkuð smart.

En ég vil bara þakka Dóru og Eric enn og aftur fyrir mig það var rosalega gaman að koma og heimsækja ykkur:)


» 2 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  30  Alls: 20921